Golf

Daly: Ég spilaði betur þegar ég var fullur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Daly fær sér reglulega smók á vellinum.
Daly fær sér reglulega smók á vellinum.
Kylfingurinn skrautlegi John Daly bindur bagga sína ekki sömu hnútum og samferðamennirnir og það hefur hann margoft sannað. Daly hefur átt í vandræðum með áfengi, fíkniefni sem og vigtina á skrautlegum ferli.

Hann hefur nú gefið út bók um ferilinn þar sem hann viðurkennir að hafa spilað sitt besta golf þegar hann var drukkinn.

"Ég var hamingjusamur þegar ég var aum fyllibytta. Ég spilaði betur þegar ég var fullur," sagði Daly við blaðamann er hann áritaði bók sína.

"Ég lít í spegilinn og sé ekki slæman mann. Ég kenndi sjálfum mér um hjónaböndin sem fóru í vaskinn en sé í dag að það þarf tvo til. Það var ekki allt mér að kenna og ég get ekki kennt sjálfum mér um allt sem miður fór."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×