Fótbolti

Zlatan er ekki á leið frá Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic í leik með Barcelona.
Zlatan Ibrahimovic í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP
Umboðsmaður Svíans Zlatan Ibrahimovic þvertekur fyrir að leikmaðurinn sé á leið frá Barcelona nú í sumar.

Nú síðast var AC Milan sagt tilbúið að bjóða Barcelona 80 milljónir evra í Zlatan en hann kom til Börsunga frá Inter síðastliðið sumar.

Í síðustu viku keypti Barcelona sóknarmanninn David Villa frá Valencia og þótti það gefa til kynna að Zlatan væri á leið frá félaginu.

„Ibrahimovic verður áfram hjá Barca," sagði umboðsmaðurinn. „Í hverru viku er hann orðaður í blöðunum við lið eins og Chelsea, Juventus og svo framvegis. En hann er ekki til sölu og það hefur Barca staðfest. Hann var ánægður með tímabilið, þrátt fyrir að hann þurfti að glíma við ýmis meiðsli."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×