Fótbolti

Ancelotti vill ekki taka við Ítalíu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Carlo Ancelotti.
Carlo Ancelotti.

Carlo Ancelotti segist ekki hafa áhuga á að taka við þjálfun ítalska landsliðsins eftir heimsmeistaramótið. Fjölmiðlar á Ítalíu hafa verið að orða hann við starfið.

„Ég hef ekki áhuga á að taka við landsliðinu. Ég vil frekar vera áfram hjá Chelsea og koma liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar," sagði Ancelotti.

Chelsea er með eins stigs forystu í ensku úrvalsdeildinni og hefur Ancelotti lofað því að segja sína skoðun á Jose Mourinho ef liðinu tekst að vinna titilinn. „Ef ég vinn deildina með Chelsea mun ég segja hvað mér finnst um þjálfara Inter," sagði Ancelotti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×