Handbolti

Tvis Holstebro vill skoða Valdimar Fannar Þórsson

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Valdimar var einn besti leikmaður N1- deildarinnar.
Valdimar var einn besti leikmaður N1- deildarinnar. Fréttablaðið/Stefán

Valdimar Fannar Þórsson er undir smásjá danska úrvalsdeildarfélagsins Team Tvis Holstebro, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Eins og kom fram á Vísi rétt áðan hefur félagið einnig áhuga á Fannari Þór Friðgeirssyni, leikmanni Vals.

Valdimar leikur með HK en hann var valinn besti leikmaður N1-deildar karla.Valdimar var einnig valinn besti sóknarmaðurinn og hlaut hinn eftirsótta Valdimarsbikar sem veittur er mikilvægasta leikmanninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×