Fótbolti

Capello hittir FA vegna áhuga Inter

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Capello er sagður vilja skuldbinda sig enska landsliðinu.
Capello er sagður vilja skuldbinda sig enska landsliðinu. GettyImages
Enska knattspyrnusambandið ætlar að funda hið fyrsta við stjóra aðalliðs síns, Fabio Capello. Inter Milan er sagt vera sannfært um að fá hann til sín eftir HM. Pressan frá Inter er mikil um að fá Capello aftur til Ítalíu. Capello er með klásúlu í samningi sínum sem segir að eitthvað félag borgi sex milljónir punda fyrir hann þarf enska knattspyrnusambandið að sleppa honum. "Ég er ánægður með að hann geti losað sig frá sambandinu," sagði Massimo Moratti, forseti Inter. Kynti það verulega undir orðróminn. Flestir netmiðlar á Englandi eru þó á því að Capello hafi engan áhuga á að hætta með liðið strax.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×