Körfubolti

Helena ísköld í lokaleiknum í deildinni og TCU tapaði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/AP

Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í TCU töpuðu 70-65 á útivelli fyrir BYU-háskólanum í lokaleik sínum í deildarkeppni Mountain West deildarinnar um helgina. Helena var með 5 stig, 4 stoðsendingar og 2 stolna bolta í leiknum.

Það gekk nánast ekkert upp hjá Helenu í leiknum en hún klikkaði meðal annars á öllum átta skotum sínum utan af velli. Öll fimm stigin hennar komu af vítalínunni.

Helena náði þó að komast upp í þriðja sætið á listanum yfir þá leikmenn sem hafa gefið flestar stoðsendingar í sögu TCU-skólans en hún er nú kominn með 390 stoðsendingar á háskólaferli sínum.

TCU spilar sinn fyrsta leik í úrslitakeppni Mountain West deildarinnar á föstudaginn kemur en þar sem að liðið er deildarmeistari þá kemur það ekki inn fyrr en í undanúrslitununum og því er ekki orðið ljóst hverjir verða mótherjarnir í næsta leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×