Handbolti

Patrekur: Þetta einvígi fer alla leið í oddaleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar.
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar.
Haukar og Valur leika í kvöld fyrsta leikinn í úrslitaeinvígi N1 deildar karla í handbolta en leikurinn fer fram á Ásvöllum, hefst klukkan 20.00 og er í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Vísir fékk Patrek Jóhannesson, þjálfara Stjörnunnar, til þess að fara aðeins í gegnum hvernig einvígið horfir við honum.

„Þetta eru áþekk lið, tvö hörkulið sem spila bæði góðan varnarleik. Bæði lið eru með góða breidd, með leikmenn upp úr sinum eigin röðum en hafa einnig verið dugleg að versla inn," segir Patrekur.

„Haukarnir eru búnir að vinna þetta síðustu tvö ár en Valsmenn eru með ágætis breidd og frábaran markmann sem er búinn að verja vel. Haukarnir eru með það líka. Þetta eru mjög svipuð lið og það er erfitt að spá til um þetta. Bæði lið eru með sterkan heimavöll og ef maður ætti á spá þá held ég að þetta verði fimm leikir sem er bara gott mál," segir Patrekur.

„Mér finnst Fannar Þór Friðgeirsson hjá Val vera búinn að vera einn sá besti í deildinni í vetur og svo er náttúrulega Sigurbergur Sveinsson mjög mikilvægur hjá Haukum. Það mæðir svolítið mikið á þessum leikmönnum hjá liðunum," segir Patrekur en hann segir markmenn liðanna vera einnig í stórum hlutverkum en þar sé jafnt á komið með liðunum. „Í markinu er Hlynur Morthens búinn að vera frábær hjá Val en síðan eru Haukarnir með Birki og Aron," segir Patrekur.

„Valsarar kláruðu mjög erfitt dæmi á móti Akureyri eftir að hafa tapað fyrsta leik. Haukarnir fóru í gegnum HK 2-0 þannig að þetta eru liðin sem eru best í dag," segir Patrekur og ítrekar spá sína um oddaleik í einvíginu.

„Ég spái að þetta fari í fimm leiki og að það verði tvöföld framlenging í þeim leik. Þetta gæti jafnvel ráðist á vítakeppni sem væri gott fyrir sportið," sagði Patrekur í léttum tón.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×