Fótbolti

Snilldarmark Totti skaut Roma á toppinn á Ítalíu (Myndband)

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Roma er enn á ný komið á toppinn í Serie-A deildinni ítölsku eftir 2-1 sigur á Parma í gær. Fyrirliðinn Fransesco Totti leiddi liðið til sigursins.

Totti skoraði enn eitt snilldarmarkið á ferlinum þegar hann vippaði snyrtilega yfir markvörð Parma. Hann skaut einnig í stöngina í leiknum áður en hann lagði upp sigurmarkið fyrir Rodrigo Taddei.

Markið hjá Totti má sjá hér.

Totti hefur skorað tólf mörk á tímabilinu en hann hefur verið mikið meiddur. Hann er hættur að leika með landsliðinu en hefur verið orðaður við að spila á HM í sumar.

Inter getur komist aftur yfir Roma með sigri á Lazio í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×