Körfubolti

Hauki og félögum tókst ekki að vinna í Madison Square Garden

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson í leiknum í nótt.
Haukur Helgi Pálsson í leiknum í nótt. Mynd/AP
Haukur Helgi Pálsson og félagar í Maryland urðu í 4. sæti á 2K Sports Classic hraðmótinu í New York en því lauk í nótt. Maryland tapaði 76-80 fyrir Illinois í leiknum um þriðja sætið efrir að hafa tapað fyrir Pittsburgh í undanúrslitunum. Pittsburgh vann síðan mótið.

Haukur Helgi fékk aðeins að spila í þrjár mínútur í nótt alveg eins og í undanúrslitaleiknum í fyrrinótt. Honum tókst að koma sér á blað og náði því ekki að skora á fyrstu sex mínútunum sínum á gólfinu í Madison Square Garden.

Maryland vann fyrstu þrjá leiki sína á tímabilinu en hefur nú tapað tveimur leikjum í röð. Haukur Helgi hefur fengið að spila í alls 38 mínútur í fyrstu fimm leikjunum og er með 9 stig, 9 fráköst og 3 stoðsendingar á þeim. Hann hefur skorað 7 af 9 stigum sínum á vítalínunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×