Körfubolti

Jón Arnór stigahæstur í naumu tapi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Steffánsson.
Jón Arnór Steffánsson. Mynd/Vilhelm

Jón Arnór Stefánsson skoraði fjórtán stig þegar lið hans, CB Granada, tapaði naumlega fyrir Bizkaia Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag, 77-75.

Jón Arnór lék í alls 26 mínútur í leiknum og spilaði vel. Hann nýtti fjögur af sex tveggja stga skotunum sínum og tvær af fimm þriggja stiga tilraunum. Hann gaf fimm stoðsendingar og tók eitt frákast.

Granada byrjaði betur og var með fyrstu í hálfleik, 45-40. En liðið skoraði aðeins tíu stig í þriðja leikhluta og Bilbao náði að tryggja sér sigurinn undir lokin.

CB Granada er í sextánda og þriðja neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig en Bilbao er í áttunda sæti með tíu stig eftir sigurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×