Körfubolti

Jakob innsiglaði nauman útisigur Sundsvall á vítalínunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Valli
Jakob Örn Sigurðarson var með 16 stig og tvö síðustu stig Sundsvall Dragons í eins stigs útisigri, 73-72, á Sodertajle Kings. Sundsvall náði þar með aftur öðru sæti deildarinnar af Plannja og minnkaði forskot Norrköping á toppnum í fjögur stig.

Jakob kom Sundsvall í 73-69 með því að setja niður tvö vítaskot 24 sekúndum fyrir leikslok.

Jakob var með 16 stig, 7 fráköst og 1 stoðsendingu í leiknum og var annar stigahæsti leikmaður Sundsvall. Jakob hitti úr 4 af 12 skotum sínum í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×