Körfubolti

Helgi Már og félagar úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helgi Már Magnússon í leik með KR á síðustu leiktíð.
Helgi Már Magnússon í leik með KR á síðustu leiktíð. Mynd/Anton

Helgi Már Magnússon og félagar hans í Solna Vikings eru úr leik í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir að hafa tapað fyrir deildarmeisturum Norrköping í kvöld, 111-83.

Þetta var fimmta viðureign liðanna og oddaleikurinn í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Norrköping mætir nú Plannja í úrslitarimmunni en þessi tvö lið urðu í efstu tveimur sætum deildarkeppninnar.

Helgi Már Magnússon skoraði tvö stig í leiknum og tók þrjú fráköst á þeim 23 mínútum sem hann lék.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×