Körfubolti

Helena með 20 stig í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena í leik með TCU.
Helena í leik með TCU. Mynd/AP

Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig fyrir TCU í nótt en það dugði ekki til þar sem að liðið tapaði fyrir West Virginia í bandaríska háskólaboltanum í nótt, 62-49.

West Virginia er eitt sterkasta háskólaliðið í Bandaríkjunum í dag en liðin voru að keppa á móti sem nefnist Paradise Jam og er hluti af undirbúningstímabilinu.

Helena lék í 33 mínútur og tók tók fimm fráköst og stal einum bolta. Alls tapaði hún sex boltanum í leiknum og nýtti helming skota sinna utan af velli.

TCU hafði unnið fyrstu þrjá leiki sína á tímabilinu en Helena er á sínu lokaári í skólanum og sem fyrr lykilmaður í körfuboltaliði þess.

Keppni á mótinu heldur áfram í nótt og mætir þá TCU öðru sterku liði, Iowa State.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×