Körfubolti

Jakob með 20 stig í sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob Sigurðarson í leik með KR.
Jakob Sigurðarson í leik með KR. Mynd/Daníel

Jakob Sigurðarson skoraði 20 stig þegar lið hans, Sundsvall Dragons, vann góðan sigur á 08 Stockholm, 89-79, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Sundsvall var með undirtökin allan leikinn en liðið leiddi með fimmtán stiga mun í hálfleik, 56-41.

Jakob var á vellinum í rúmar 37 mínútur og á þeim tíma skoraði hann 20 stig, tók fjögur fráköst og stal tveimur boltum.

Hlynur Bæringsson lék ekki með Sundsvall í kvöld vegna meiðsla.

Þá skoraði Logi Gunnarsson ellefu stig fyrir Solna sem tapaði fyrir toppliði Södertälje, 79-63, í kvöld. Logi lék í 34 mínútur og gaf fimm stoðsendingar og stal þremur boltum.

Södertälje er enn með fullt hús stiga á toppi deildarinnar eftir sex leiki en Sundsvall er í fjórða sæti með átta stig og Solna í því sjötta með fjögur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×