Fótbolti

Pedro verðlaunaður með nýjum samningi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pedro fagnar marki í leik með Barcelona.
Pedro fagnar marki í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Pedro Rodriguez hefur skrifað undir nýjan samning við Barcelona og gildir hann ári lengur en sá gamli eða til loka tímabilsins 2015.

Pedro sló í gegn með Barcelona á árinu og skoraði 23 mörk í 52 leikjum. Hann varð einnig fyrsti leikmaður félagsins til að skora í sex mismunandi keppnum á einu og sama tímabilinu.

„Ég er mjög ánægður," sagði Pedro við spænska fjölmiðla. „Þetta var mjög gott tímabil og við unnum titilinn sem var ekki auðvelt. Við ætlum að endurtaka það."

Pedro var valinn í HM-hóp Spánverja og skoraði á dögunum sitt fyrsta landsliðsmark í 6-0 sigri Spánar á Póllandi í æfingaleik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×