Körfubolti

Helena í hópi 30 bestu leikmanna bandaríska háskólaboltans

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir Mynd/AP
Körfuboltakonan Helena Sverrisdóttir fékk mikla viðurkenningu fyrir helgi þegar í ljós kom að hún væri á John R. Wooden listanum. Á þessum lista eru 30 leikmenn í bandaríska háskólaboltanum sem kom til greina sem leikmaður ársins í vor og verða þessar stelpur því undir smásjánni hjá valnefndinni fyrir John Wooden verðlaunin í vetur.

Verðlaunin eru veitt í nafni John Wooden, sem er fyrrverandi þjálfari UCLA liðsins og sá sigursælasti í sögu háskólaboltans, og þau fær sá háskólaleikmaður sem stendur sig best að mati íþróttafréttamanna sem fylgjast með háskólakörfunni.

Helena er nú á sínu síðasta ári með TCU-háskólaliðinu en hún er með 12,8 stig (13,6 í fyrra), 6,5 fráköst (6.7) og 4,1 stoðsendingar (5,2) að meðaltali á fyrstu þremur árum sínum í skólanum. Helena hefur verið í byrjunarliðinu í 93 af 96 leikjum sínum fyrir TCU en hún er eini leikmaður skólans frá upphafi sem nær því að skora 1000 stig, taka 500 fráköst og gefa 300 stoðsendingar.



John R. Wooden listinn fyrir árið 2010-2011


Leikmaður Hæð. Ár Staða Skóli Deild

Danielle Adams 6-1 Sr. F/C Texas A&M Big 12

Kachine Alexander 5-9 Sr. G Iowa Big Ten

Angie Bjorklund 6-0 Sr. G/F Tennessee SEC

Jessica Breland 6-3 Sr. F North Carolina ACC

Elena Delle Donne 6-5 So. G/F Delaware CAA

Skylar Diggins 5-9 So. G Notre Dame Big East

Jasmine Dixon 6-0 Jr. F UCLA Pac 10

Victoria Dunlap 6-1 Sr. F Kentucky SEC

Dawn Evans 5-7 Sr. G James Madison CAA

Brittney Griner 6-8 So. C Baylor Big 12

Amber Harris 6-5 Sr. F Xavier Atlantic 10

Tiffany Hayes 5-10 Jr. G Connecticut Big East

Shenise Johnson 5-11 Jr. G Miami ACC

Jantel Lavender 6-4 Sr. C Ohio State Big Ten

Italee Lucas 5-8 Sr. G North Carolina ACC

Maya Moore 6-0 Sr. F Connecticut Big East

Deirdre Naughton 5-10 Sr. G DePaul Big East

Nnemkadi Ogwumike 6-2 Jr. F Stanford Pac 10

Kayla Pedersen 6-4 Jr. F Stanford Pac 10

Ta'Shia Phillips 6-6 Sr. C Xavier Atlantic 10

Samantha Prahalis 5-7 Jr. G Ohio State Big Ten

Lauren Prochaska 5-11 Sr. G/F Bowling Green Mid-American

Chastity Reed 6-1 Sr. F Arkansas Little-Rock Sun Belt

Danielle Robinson 5-9 Sr. G Oklahoma Big 12

Sugar Rodgers 5-11 So. G Georgetown Big East

Shekinna Stricklen 6-2 Jr. G/F Tennessee SEC

Helena Sverrisdóttir 6-1 Sr. G/F TCU Mountain West

Carolyn Swords 6-6 Sr. C Boston College ACC

Jasmine Thomas 5-9 Sr. G Duke ACC

Courtney Vandersloot 5-8 Sr. G Gonzaga West Coast




Fleiri fréttir

Sjá meira


×