Golf

Kylfusveinarnir fljúga á fyrsta farrými

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Williams er vanur að hafa það huggulegt nema þegar hann þarf að bera þungan pokann.
Williams er vanur að hafa það huggulegt nema þegar hann þarf að bera þungan pokann.

Steve Williams, kylfusveinn Tiger Woods, fær ekki að fljúga með Tiger Woods á Ryder Cup þar sem Tiger stóð sig ekki nógu vel og var tekinn inn í bandaríska liðið sem aukamaður.

Williams og tveir aðrir kylfusveinar þurfa að taka annað flug á keppnisstað þar sem það var ekki nóg pláss í flugvélinni fyrir alla. Það er að segja á fyrsta farrými

Kylfusveinarnir hefðu getað setið aftur í með almúganum en það vildu forráðamenn PGA ekki sjá. Þeir taka því annað flug á fyrsta farrými og eru víst kátir með það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×