Körfubolti

Helena valin í úrvalsliðið á Paradísar-mótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/TCU
Helenu Sverrisdóttur og félögum í TCU háskólaliðinu gekk illa á Paradísar-mótinu á Jómfrúaeyjum sem lauk um helgina þar sem liðið tapaði öllum þremur leikjum sínum á móti sterkum andstæðingum.

Helena fékk smá sárabót í mótslok þegar hún var valin í úrvalslið mótsins ásamt þeim Chelsea Shine, Kelsey Bolte, Hallie Christofferson og Madina Ali.

Helena var með 14,7 stig og 6,0 fráköst að meðaltali í leikjunum þremur en skoraði 20 stig í einum þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×