Handbolti

Umfjöllun: Bæði lið fögnuðu á Ásvöllum

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar. Mynd/Stefán
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar. Mynd/Stefán

Haukar fögnuðu deildarmeistaratitlinum í kvöld en þeir voru ekki þeir einu sem höfðu ástæðu til að fagna því Akureyringar sigruðu Hauka og tryggðu sér þar með þátttökurétt í úrslitakeppninni. Leiknum lauk með fjögurra marka sigri Akureyrar, 30-34.

Heimamenn byrjuðu vel með Aron Rafn Eðvarðsson í stuði í markinu. Haukaliðið virtist miklu tilbúnara í verkefnið en gestirnir að norðan. Haukar fóru auðveldlega í gegnum þunna vörn Akureyringa og komu sér strax í þægilega stöðu.

Akureyringar virkuðu slappir og þreyttir eða hreinlega bara ekki tilbúnir í slaginn. Árni Þór Sigtryggsson og Heimir Örn Árnason voru duglegir að skjóta á markið en áttu í stökustu vandræðum með að koma boltanum framhjá þeim Aroni Rafni Eðvarðssyni og Stefáni Stefánssyni sem að vörðu með tilþrifum í marki Hauka.

Staðan var 16-10 í hálfleik og Akureyringar ólíklegir til að breyta gangi mála.

Það kom þó smá neisti með Akureyringum út á völlinn í síðari hálfleik. Þeir voru miklu ákveðnari og greinilega fengu smá trú á verkefninu er þeir ræddu saman í búningsklefanum. Í kjölfarið fóru heimamenn að missa sjálfstraustið og norðanmenn gengu á lagið.

Jónatan Þór Magnússon vaknaði til lífsins og raðaði inn mörkum. Það gaf liðinu enn meira sjálfstraust og eftir aðeins níu mínútur voru gestirnir búnir að jafna leikinn, 20-20. Allt gat gerst og loksins spenna komin í leikinn á Ásvöllum.

Það voru margir lykilmenn Hauka hvíldir í kvöld og það virtist setja strik í reikninginn. Gestirnir tóku leikinn í sínar hendur og ætluðu greinilega að tryggja sér síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Það var líkt og nýtt lið væri inn á vellinum.

Akureyri var með fjögurra marka forystu er fimm mínútur voru eftir. Spiluðu góða vörn og voru vel skipulagðir. Það tryggði þeim mikilvægan sigur og þar með sæti í úrslitakeppninni.

Árni Þór Sigtryggson fór mikinn í liði gestana og skoraði 10 mörk. Jónatan Þór Magnússon spilað i vel í síðari hálfleik og það munaði um minna. Stemningin sem kom út með liðinu í seinni hálfleik skilaði sér að lokum og gátu þeir farið brosandi norður á land með tryggt sæti í úrslitakeppninni sem framundan er.

Haukar-Akureyri 30-34 (16-10)

Mörk Hauka (skot): Þórður Rafn Guðmundsson 7 (11), Stefán Rafn Sigurmannssson 5 (9), Heimir Óli Heimisson 4 (4), Pétur Pálsson 4 (5), Gísli Jón Þórisson 4 (8), Björgvin Þór Hólmgeirsson 3 (4), Guðmundur Árni Ólafsson 3/2 (6/3).

Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 11 skot varin. Stefán Huldar Stefánsson 11/1 skot varin.

Hraðaupphlaup: 2 (Stefán, Þórður)

Fiskuð víti: 3 (Heimir 2, Þórður,)
Utan vallar: 6 min.

Mörk Akureyrar (skot): Árni Þór Sigtryggsson 10 (15), Jónatan Þór Magnússon 7/1 (10/2), Oddur Gretarsson 6/1 (8/2), Hörður Fannar Sigþórsson 3 (5), Rúnar Sigtryggsson 2 (2), Heimir Örn Árnason 2 (6), Halldór Árnason 1 (1).

Varin skot: Hafþór Einarsson 11 skot varin.

Hraðaupphlaup: 6 (Árni Þór 3, Rúnar, Hörður 2)

Fiskuð víti: 4 ( Oddur 2, Guðlaugur, Hörður)
Utan vallar: 6 min.

Dómarar: Svavar Pétursson og Arnar Sigurjónsson, áttu fínan dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×