Körfubolti

TCU vann og Helena valin best

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/AP
TCU vann í nótt sigur á Utah, 62-41, í bandaríska háskólaboltanum í körfubolta. Þetta var annar sigur liðsins í jafn mörgum leikjum í Mountain West-riðlinum og alls sjöundi sigur TCU í röð í öllum keppnum.

Helena Sverrisdóttir skoraði fimm stig í leiknum, gaf sex stoðsendingar, tók þrjú fráköst og stal þremur boltum á þeim 34 mínútum sem hún lék í leiknum.

Þá var hún valin ásamt leikmanni úr karlakörfuboltaliði TCU besti íþróttamaður skólans í desembermánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×