Fótbolti

Nedved sagði nei við Mourinho

Elvar Geir Magnússon skrifar
Pavel Nedved.
Pavel Nedved.

„Mér brá þegar ég heyrði rödd hans í símanum," segir hinn tékkneski Pavel Nedved í viðtali í ítölsku blaði. Þar segir hann frá því þegar Jose Mourinho reyndi að fá sig til Inter.

Mourinho sló á þráðinn til Nedved eftir að leikmaðurinn hætti hjá Juventus 2009. Nedved var í átta ár hjá Juventus.

„Í fyrstu hrósaði hann mér og sagðist svo þurfa á mér að halda til að geta unnið Meistaradeildina. Ég neitaði strax. Hjarta mitt myndi aldrei leyfa mér að spila fyrir Inter."

„Árið 2006 ákvað ég að hjálpa Juventus að komast aftur í fremstu röð. Þegar við náðum öðru sætinu fannst mér ekki lengur vera þörf á mér. Ég fékk tilboð frá ýmsum liðum en gat ekki hugsað mér að klæðast búningi einhvers annars liðs en Juventus. Því fannst mér best að leggja skóna á hilluna."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×