Fótbolti

Tímabilið hugsanlega búið hjá Nesta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hjá AC Milan spilar hugsanlega ekki meira í vetur því hann þarf væntanlega að leggjast undir hnífinn vegna hnémeiðsla.

Læknar Milan vilja aftur á móti skoða allar leiðir áður en þeir senda leikmanninn undir hnífinn.

Nesta hefur átt frábært tímabil með Milan og það yrði mikið áfall fyrir félagið ef hann gæti ekki spilað meira.

Svo vel hefur hann spilað að hávær köll voru um endurkomu hans í ítalska landsliðið.

Hann hefur sjálfur engan áhuga á því og bað fjölmiðlamenn vinsamlegast um að hætta að spyrja sig slíkra spurninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×