Fótbolti

Chivu höfuðkúpubrotnaði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cristian Chivu í leik með Inter.
Cristian Chivu í leik með Inter. Nordic Photos / AFP

Rúmeninn Cristian Chivu, leikmaður Inter á Ítalíu, höfuðkúpubrotnaði í leik með liðinu í gær og var fluttur á sjúkrahús.

Chivu og Sergio Pellissier, fyrirliði Chievo, skullu saman með þessum afleiðingum í gær en Inter vann leikinn, 1-0.

Jose Mourinho, stjóri Inter, sagði að útlitið væri ekki gott. „Hann er höfuðkúpubrotinn og við vonumst auðvitað til þess að hann geti byrjað að spila aftur eins fljótt og auðið er en ég held að hann verði frá keppni í talsvert langan tíma."

Chivu var nýlega orðaður við Manchester City en umboðsmaður hans sagði ekkert hæft í þeim sögusögnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×