Körfubolti

Stórleikur Loga dugði ekki til sigurs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Logi í leik með Njarðvík.
Logi í leik með Njarðvík.

Tveir Íslendingar voru á ferðinni í sænska körfuboltanum í kvöld og báðir máttu þeir sætta sig við að vera í tapliði að þessu sinni.

Njarðvíkingurinn Logi Gunnarsson fór á kostum fyrir Solna Vikings sem mátti sætta sig við tap, 80-91, á heimavelli gegn Jamtland.

Logi var yfirburðamaður í liði Solna og skoraði 20 stig, tók 8 fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Helgi Már Magnússon og félagar í Uppsala töpuðu á útivelli fyrir Örebro, 95-77. Helgi skoraði 2 stig, tók 2 fráköst og tók eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×