Golf

Versta mót ferilsins hjá Tiger

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Helgin var löng hjá Tiger Woods því hann hefur aldrei spilað lélegra golf síðan hann gerðist atvinnumaður í íþróttinni.

Tiger tók þátt í Bridgestone-mótinu og endaði í 78. sæti af 80 keppendum. Hann lék lokahringinn á 77 höggum og endaði þar með á 18 höggum yfir pari.

Þessi ömurlega spilamennska Tigers kom ekki síst á óvart fyrir þær sakir að hann hefur venjulega farið á kostum á þessu móti. Hann hafði fram að helginni unnið mótið sjö sinnum í níu tilraunum og aldrei endað neðar en í fimmta sæti.

"Að enda á 18 yfir pari er ekkert sérstaklega skemmtilegt. Það er virkilega erfitt að kyngja þessu," sagði svekktur Tiger eftir mótið.

Tiger lék alla hringina yfir pari sem hefur ekki gerst síðan 2003.

"Ég var samt þolimóður en það skilaði mér ekki neinu," sagði Tiger en hvað þarf hann að bæta?

Ég þarf að hitta boltann betur, ég þarf að vinna í stutta spilinu, ég þarf að pútta betur og ná betra skori," sagði Tiger réttilega enda er golf "einföld" íþrótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×