Körfubolti

Bandaríkjamenn flugu inn í átta liða úrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Chauncey Billups var sterkur í dag.
Chauncey Billups var sterkur í dag.

Bandaríkjamenn flugu inn í átta liða úrslitin á HM í körfubolta í dag er liðið rúllaði yfir Angóla, 121-66, í sextán liða úrslitum keppninnar.

Bandaríska liðið hefur ekki þótt nógu sannfærandi það sem af er keppninni þó svo það hafi ekki enn misstigið sig. Liðið var þó afar sannfærandi í dag.

Chauncey Billups var sterkur með 19 stig og þar af 16 í fyrri hálfleik er Bandaríkjamenn gengu frá leiknum.

Eric Gordon og Rudy Gay skoruðu 17 stig fyrir bandaríska liðið sem mætir Rússlandi í átta liða úrslitunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×