Fótbolti

Mourinho sagður hafa klófest Maicon

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Maicon fagnar marki í leik með Inter.
Maicon fagnar marki í leik með Inter. Nordic Photos / AFP

Enska götublaðið The Sun heldur því fram í dag að brasilíski varnarmaðurinn Maicon hafi samþykkt að ganga í raðir Real Madrid á Spáni.

Maicon er samningsbundinn Inter á Ítalíu þar sem hann lék undir stjórn Jose Mourinho. 

Mourinho er nú tekinn við þjálfun Real og er sagður hafa keypt Maicon frá Inter fyrir 25 milljónir punda.

Manchester City var einnig sagt á höttunum eftir Maicon en ekkert verður af því að hann fari þangað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×