Fótbolti

Del Piero fær nýjan samning hjá Juventus

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það vakti mikla athygli um daginn þegar Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, lýsti því yfir að hann ætlaði sér að fá gamla brýnið, Alessandro Del Piero, til liðsins í janúar.

Hinn 36 ára gamli Del Piero er að klára samning sinn við Juventus og félagið hafði ekki sýnt neinn áhuga á því að framlengja við hann.

Áhugi Berlusconi virðist hafa vakið forráðamenn Juventus af værum blundi því félagið ætlar nú að bjóða honum nýjan eins árs samning.

Viðræður um nýja samninginn eru þegar langt komnar. Del Piero sagðist vilja enda ferilinn hjá Juve þegar Berlusconi lýsti yfir áhuga á að fá hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×