Fótbolti

Umboðsmaður: Ronaldinho verður áfram hjá Milan

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ronaldinho fagnar marki í leik með AC Milan.
Ronaldinho fagnar marki í leik með AC Milan. Nordic Photos / AFP
Roberto De Assis, umboðsmaður og bróðir Brasilíumannsins Ronaldinho, telur að bróðir hans verði áfram í herbúðum AC Milan.

Fyrr í vikunni sagðist Ronaldinho sjálfur ekki vita hvar hann muni spila á næsta tímabili. „Ég held að hann verði áfram. Hann er samningsbundinn félaginu og við höfum ekki rætt um neitt annað," er haft eftir De Assis í ítölskum fjölmiðlum. „Þetta er ekkert vafamál. Honum líður vel hjá Milan og er samningsbundinn."

Núverandi samningur Ronaldinho gildir í eitt ár til viðbótar. Fyrr í vikunni var greint frá að Inter myndi bjóða honum nýjan samning en félagið hefur neitað þeim fregnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×