Fótbolti

Berlusconi vill fá Van Basten

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

La Gazzetta dello Sport heldur því fram í dag að Hollendingurinn Marco Van Basten sé efstur á óskalista Silvio Berlusconi, eiganda AC Milan, sem næsti þjálfari liðsins.

Búist er við því að Brasilíumaðurinn Leonardo fái sparkið í sumar en það hefur alla tíð verið frekar grunnt á því góða milli hans og Berlusconi.

Titlalaust tímabil er eitthvað sem Berlusconi sættir sig illa við og hann hefur nú skipað stjórnarmönnum að ræða við Van Basten.

Aðrir sem eru orðaðir við þjálfarastöðuna hjá Milan eru Mauro Tassotti, Filippo Galli, Massimiliano Allegri og Frank Rijkaard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×