Körfubolti

Helena að nálgast þúsundasta stigið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU.
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir var einu stigi frá því að jafna persónulega stigametið sitt með TCU þegar hún skoraði 26 stig í 66-61 útisigri á Houston í bandaríska háskólaboltanum á gamlárskvöld.

Helena hitti úr þremur af fimm þriggja stiga skotum sínum og tók sex fráköst í leiknum. TCU-liðið vann þarna sinn fjórða leik í röð og hefur alls unnuð 9 af 12 leikjum sínum á tímabilinu.

Helenu vantar nú ekki nema 15 stig til að verða ellefti leikmaðurinn í sögu TCU til að skora þúsund stig og þá er hún aðeins sex stoðsendingum frá því að gefa stoðsendingu númer 300. Næsti leikur TCU er á móti Texas A&M Corpus Christi á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×