Körfubolti

Helena leikmaður vikunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir, leikmaður TCU-háskólaliðsins í Bandaríkjunum, var í annað skiptið í vetur valin leikmaður vikunnar í Mountain West-riðlinum.

Helena átti tvo frábæra leiki í liðinni viku. Hún fór á kostum í sigri TCU á Utah er hún skoraði 23 stig og klikkaði bara á einu skoti allan leikinn. Þar að auki tók hún sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar í leiknum.

Hún skoraði svo 24 stig er TCU vann New Mexico á laugardaginn en samtals klikkaði hún bara á sex skotum í þessum tveimur leikjum samanlagt. Hún nýtti þar að auki öll fjórtán vítaköstin sín.

TCU mætir Air Force-skólanum í lokaleik deildakeppninna á miðvikudaginn en svo tekur úrslitakeppnin við sem fer fram aðra helgina í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×