Körfubolti

Logi með 22 stig á 21 mínútu í stórsigri Solna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson. Mynd/Daníel
Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings unnu auðveldan 37 stiga útisigur á 08 Stockholm HR, 101-64, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Logi skoraði 22 stig á 21 mínútu í leiknum en hann var hvíldur allan lokaleikhlutann þegar úrslitin voru ráðin.

Logi var kominn með 14 stig í hálfleik þar sem Solna liðið var komið átta stigum yfir, 47-39. Logi bætti síðan við átta stigum í þriðja leikhlutanum sem Solna vann 34-11 og gerði endanlega út um leikinn.

Logi hitti úr 7 af 12 skotum sínum í leiknum og úr 4 af 5 vítum sínum. Hann setti niður 4 af 8 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna.

Solna er í 6. sæti deildarinnar með 14 sigra og 16 töp en liðið er með jafnmörg stig og Helgi Már Magnússon og félagar í Uppsala sem eiga reyndar tvo leiki inni á Loga og félaga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×