Körfubolti

Helena sjóðheit í sigri TCU

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir skoraði 23 stig fyrir TCU sem vann sigur á Utah í bandaríska háskólaboltanum í nótt, 71-60.

Helena var stigahæst allra leikmanna inn á vellinum og var með stórkostlega nýtingu en hún klikkaði bara á einu skoti allan leikinn. Hún setti niður fimm þrista í sex tilraunum, nýtti öll sex vítaköstin sín og eitt tveggja stiga skot þar að auki.

Þar að auki tók hún sjö fráköst, gaf sex stoðsendingar eða flestar allra í hennar liði, stal boltanum einu sinni og varði eitt skot. Hún tapaði boltanum tvisvar en lék í alls 36 mínútur í leiknum.

Helena skoraði ellefu af fyrstu fimmtán stigum TCU í leiknum og átti stóran þátt í sigri liðsins í nótt.

Aðeins tveir leikir eru eftir af deildakeppninni en TCU verður nánast örugglega í öðru sæti Mountain West-riðilsins. Úrslitakeppnin í riðlinum fer fram í Las Vegas aðra helgina í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×