Körfubolti

Helgi Már og félagar náðu fimmta sætinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob skoraði 22 stig í kvöld.
Jakob skoraði 22 stig í kvöld. Mynd/Valli
Helgi Már Magnússon og félagar í Uppsala tryggðu sér fimmta sætið í lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld en fyrir umferðina var Uppsala í baráttunni við Loga Gunnarsson og félagar í Solna Vikings um umrætt fimmta sæti.

Helgi Már var með 5 stig, 5 fráköst og 2 stoðsendingar á 20 mínútum í 95-84 útisigri Uppsala Basket á 08 Stockholm.

Logi skoraði 22 stig fyrir Solna Vikings en það dugði skammt því liðið tapaði 78-93 á útivelli á móti ecoÖrebro. Logi hitti úr 6 af 12 þriggja stiga skotum sínum í leiknum.

Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson eru orðnir deildarmeistarar fyrir nokkru en Sundsvall Dragons vann 86-80 útisigur á Södertälje Kings í kvöld. Jakob skoraði 18 af 22 stigum sínum í seinni hálfleik og Hlynur var með 6 stig, 11 fráköst og 4 stoðsendingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×