Körfubolti

Haukur Helgi og félagar úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Haukur Helgi, í rauða búningum, í baráttunni við leikmenn Duke í leiknum í nótt.
Haukur Helgi, í rauða búningum, í baráttunni við leikmenn Duke í leiknum í nótt. Mynd/AP
Haukur Helgi Pálsson var aftur í byrjunarliði Maryland sem féll úr leik í úrslitakeppni ACC-deildarinnar í bandaríska háskólaboltanum í nótt.

Maryland tapaði fyrir hinu geysisterka liði Duke, 87-71, í 8-liða úrslitunum.

Haukur Helgi er nýliði hjá Maryland og hefur komið mjög á óvart með því að vinna sér sæti í byrjunarliðinu í báðum leikjum liðsins í úrslitakeppninni.

Hann skoraði fimm stig í leiknum, rétt eins og í gær, gaf þrjár stosendingar, tók tvö fráköst og stal boltanum einu sinni á þeim 24 mínútum sem hann spilaði í nótt.

Tímabilinu er því lokið hjá Hauki og félögum en óhætt að segja að okkar maður hafi komið sterkur inn í bandaríska háskólaboltann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×