Körfubolti

Logi stigahæstur í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson.
Solna Vikings tapaði í kvöld fyrir Norrköping í fyrsta leik liðanna í fjórðungsúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta, 91-86.

Logi Gunnarsson var stigahæstur hjá Solna með sautján stig en hann tók þar að auki níu fráköst í leiknum.

Staðan í hálfleik var jöfn, 40-40, og var jafnræði með liðunum þar til að Solna komst sjö stigum yfir í fjórða leikhluta, 77-70. Þá tók heimamenn sig til og skoruðu næstu þrettán stig í leiknum. Sú forysta dugði liðinu til sigurs.

Norrköping varð í þriðja sæti deildarinnar en Solna í því sjötta. Næsti leikur liðanna í einvíginu verður á föstudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×