Körfubolti

Helgi Már með 11 stig í sigri Uppsala

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Helgi Már í leik með KR.
Helgi Már í leik með KR. Mynd/Anton
Körfuknattleikskappinn Helgi Magnússon skoraði 11 stig í sigri Uppsala gegn Södertälje Kings, 79-60, í 8-liða úrslitum í sænsku deildinni. Þar með náðu Helgi og félagar að knýja fram oddleik í einvígi þessara liða en staðan er nú 2-2.

Auk þess að skora 11 stig tók Helgi sex fráköst og gaf eina stoðsendingar. Uppsala varð í fimmta sæti í sænsku deildinni en Södertälje Kings varð í því fjórða. Oddaleikur liðanna fer fram á þriðjudag og þá verður leikið á heimavelli Södertälje Kings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×