Körfubolti

Jón Arnór og félagar fallnir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór í leik með KR árið 2009.
Jón Arnór í leik með KR árið 2009. Mynd/Stefán
CB Granada, lið Jóns Arnórs Stefánssonar, er fallið úr spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Liðið tapaði í kvöld fyrir Unicaja, 78-53.

Tvö lið falla úr deildinni og er Granada í sautjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með sjö sigurleiki, rétt eins og botnlið Menorca Basquet. Aðeins ein umferð er eftir af deildarkeppninni og á Granada ekki lengur möguleika á að bjarga sér frá falli.

Jón Arnór var stigahæstur í liði Granada með sautján stig en hann tók þar að auki þrjú fráköst.

Unicaja er í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina og þurfti því nauðsynlega á sigri að halda í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×