Körfubolti

Jakob: Þetta kitlar egóið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Jakob Örn Sigurðarson átti stórleik þegar að lið hans, Sundsvall Dragons, varð sænskur meistari í körfubolta eftir sigur á Norrköping Dolphins, í oddaleik um titilinn.

Jakob fór á kostum og skoraði 31 stig, þar aff 26 í fyrri hálfleik þar sem hann fór á kostum. Sundsvall náði 22 stiga forystu eftir fyrri hálfleikinn og Norrköping náði aldrei að ógna henni verulega í þeim síðari.

Jakob var einnig hetja liðsins í síðasta leik liðanna þegar að Norrköping var aðeins tveimur sekúndum frá titlinum. Þá setti hann niður þriggja stiga skot, tryggði sínum mönnum framlengingu þar sem Sundsvall vann svo sigur.

„Ég neita því ekkert að þetta kitlar egóið,“ sagði hann léttur í dúr í viðtali við Vísi í kvöld. „Sjálfstraustið var gott og þannig var það hjá öllu liðinu. Síðasti leikur hjálpaði einnig mikið til og hafði góð áhrif á þennan leik. Við mættum til leiks með mikið sjálfstraust og það jókst bara eftir því sem leið á leikinn.“

Hann segir að leikmenn hafi verið meðvitaðir um að halda yfirvegun sinni þrátt fyrir góða stöðu í hálfleik.

„Það er erfitt að spila svona allan leikinn. Við töluðum um það. Við höfum áður haft svona mikla forystu á móti þeim en tapað henni niður og næstum tapað leiknum. við vissum að þeir myndu reyna að koma til baka.“

„En við stóðum okkur vel í að halda aftur af þeim. Í hvert sinn þegar þeir komu með smá áhlaup hittum við úr stórum skotum og settum helst þrist í andlitið á þeim. Við náðum því að stjórna seinni hálfleiknum eins og við gerðum í þeim fyrri.“

Hann segir það ótrúlegt að hafa dottið í svona mikið stuð eins og hann gerði í dag. „Eftir að ég hitti úr fyrstu tveimur skotunum þá leið mér rosalega vel. Því hélt ég bara áfram - að sjálfsögðu.“

Nánar verður rætt við Jakob og liðsfélaga hans, Hlyn Bæringsson, í Fréttablaðinu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×