Körfubolti

Jón Arnór með sjö stig í lokaleiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Jón Arnór Stefánsson skoraði í dag sjö stig þegar að lið hans, CB Granada, tapaði fyrir Gran Canaria í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta, 93-69.

Granada féll úr deildinni fyrir nokkru síðan en endaði í næstneðsta sætinu með sjö sigurleiki í 34 leikjum, rétt eins og botnliðið Menorca Basquet.

Jón Arnór lék í rúmar 30 mínútur og nýtti eitt af átta skotum sínum utan af velli. Hann setti niður öll fjögur vítaköstin sín, gaf tvær stoðsendingar og tók eitt frákast.

Óvíst er hvað tekur við hjá Jóni Arnóri en samningur hans við félagið rennur út nú í lok leiktíðar.

Barcelona varð deildarmeistari og vann einum leik meira en Real Madrid sem varð í öðru sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×