Körfubolti

Jakob Örn samdi við Sundsvall á ný

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson verða áfram í herbúðum Sundsvall á næstu leiktíð.
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson verða áfram í herbúðum Sundsvall á næstu leiktíð. Sundsvalldragons.com
Jakob Örn Sigurðarson hefur samið við sænska meistaraliðið Sundsvall til eins árs en hann var lykilmaður liðsins á síðustu leiktíð. Jakob hefur leikið með sænska liðinu undanfarin tvö tímabil en Hlynur Bæringsson varð meistari með liðinu á sínu fyrsta tímabili.

Jakob Örn hafði úr öðrum tilboðum að velja en hann ákvað að taka eitt ár til viðbótar í Svíþjóð. Fredrik Åhnstrand, íþróttastjóri Sundsvall, segir á heimasíðu félagsins að það hafi verið gríðarlega mikilvægt fyrir félagið að halda Jakobi. „Þetta er stór biti í púsluspilinu fyrir næsta tímabil, hann er leikmaður sem vill axla ábyrgðina og taka af skarið þegar mest á reynir. Að auki er Jakob frábær íþróttamaður og manneskja – eins og við viljum hafa í okkar liði," segir Åhnstrand.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×