Körfubolti

Marion Jones fær ekki nýjan samning hjá Shock

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Marion Jones.
Marion Jones.
Fyrrum Ólympíumeistarinn í spretthlaupum, Marion Jones, fær ekki nýjan samning hjá WNBA-liðinu Tulsa Shock og framtíð hennar í körfuboltanum er í óvissu.

Jones var ekki beint að kveikja í deildinni með frammistöðu sinni á síðustu leiktíð þar sem hún náði ekki einu sinni að vera með eitt stig að meðaltali í leik.

Jones sagði í yfirlýsingu að hún væri þakklát liðinu sem hefði leyft henni að láta draum rætast. Hún vonast til þess að komast að hjá öðru félagi. Hvort eitthvað annað félag vill fá hana er svo önnur saga.

Jones vann þrjú gullverðlaun og tvö brons á Ólympíuleikunum i Sydney árið 2000. Hún missti síðar öll verðlaunin er upp komst að hún hefði verið á ólöglegum efnum.

Fyrir vikið varð hún að dúsa í fangelsi í hálft ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×