Körfubolti

Frábær byrjun Hauks og félaga í Manresa - unnu aftur í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Haukur Helgi Pálsson var aftur í byrjunarliði Manresa þegar liðið vann sex stiga útisigur á Baloncesto Fuenlabrada, 79-73, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Manresa hefur unnið tvo fyrstu leiki tímabilsins og Haukur Helgi hefur fengið að byrja tvo fyrstu leiki sína í bestu körfuboltadeild í Evrópu.

Haukur Helgi var með fimm stig, eina stoðsendingu og einn stolinn bolta á 14 mínútum í leiknum en hann hitti úr 2 af 6 skotum sínum.

Assignia Manresa vann annan leikhlutann 20-9 og lagði þar grunninn að sigrinum en liðið var með tíu stiga forskot í hálfleik, 39-29.

Manresa vann 71-59 heimasigur á Joventut í fyrstu umferðinni um síðustu helgi og er nú við topp deildarinnar ásamt stórliðum eins og Barcelona og Unicaja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×