Fótbolti

Enn skorar Emil á Ítalíu - fimmti sigurinn í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Emil Hallfreðsson skoraði eitt mark þegar að lið hans, Hellas Verona, vann 3-1 útisigur á Empoli í ítölsku B-deildinni í dag. Smellið á myndbandið til þess að sjá markið sem er skorað eftir 3:30 mínútur.

Emil skoraði markið í uppbótartíma en Hellas Verona hefur verið á miklu skriði í deildinni að undanförnu. Liðið hefur unnið fimm leiki í röð og er nú í fimmta sæti deildarinnar með 28 stig, aðeins fjórum stigum á eftir liðinu í öðru sæti.

Torino er á toppi deildarinnar með 35 stig en liðið gerði í dag jafntefli við Crotone á útivelli. Var það þriðja jafntefli liðsins í röð.

Emil hefur nú skorað sex mörk í bæði deild og bikar fyrir Hellas Verona en hann hefur verið fastamaður í byrjunarliði liðsins allt tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×