Körfubolti

Jón Arnór með 13 stig á 20 mínútum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Stefán
Jón Arnór Stefánsson átti sinn besta leik á tímabilinu þegar lið hans CAI Zaragoza vann 67-59 sigur á Murcia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Þetta var aðeins annar sigur liðsins í sex leikjum.

Jón Arnór skoraði 13 stig á 20 mínútum í leiknum og hitti úr 6 af 8 skotum sínum. Zaragoza-liðið vann með 9 stigum þegar Jón Arnór var inn á vellinum.

Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem Jón Arnór brýtur tuttugu stiga múrinn í búningi CAI Zaragoza í ACB-deildinni og hann var aðeins búinn að skora 9 stig á 44 mínútum í síðustu þremur leikjum sem höfðu allir tapast.

Haukur Helgi Pálsson fékk ekkert að koma inn á þegar lið hans Assignia Manresa tapaði 82-88 á útivelli á móti Lagun Aro í gær.     






Fleiri fréttir

Sjá meira


×