Körfubolti

Flottur sigur hjá Helga og félögum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helgi Már Magnússon í leik með KR.
Helgi Már Magnússon í leik með KR. Mynd/Anton
08 Stockholm kom sér í kvöld úr fallsæti í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta með sigri á einu af sterkari liðum deildarinnar, Borås Basket. Lokatölur voru 96-88.

Helgi Már Magnússon leikurm með 08 Stockholm og skoraði tólf stig í leiknum. Hann spilaði í alls 26 mínútur og nýtti öll skot sín nema eitt í leiknum, tók fimm fráköst, stal boltanum tvisvar, gaf eina stoðsendingu og varði einn bolta.

Leikurinn var jafn og spennandi en þó var 08 skrefi framar lengst af í leiknum. Liðið komst með sigrinum upp í áttunda sæti deildarinnar og er nú með tólf stig eftir þrettán leiki.

Borås hefði komist á topp deildarinnar með sigrinum í kvöld en þrjú lið eru nú efst og jöfn með átján stig, Norköping, Sundsvall og Borås.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×