Körfubolti

Uppsala og Solna töpuðu bæði í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson. Mynd/Anton
Íslendingaliðin Uppsala Basket og Solna Vikings töpuðu bæði leikjum sínum í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Liðin eru því áfram í miðri stigatöflunni, Uppsala með 26 stig í 5. sæti og Solna með 22 stig í 6. sæti.

Logi Gunnarsson fann sig ekki í 104-82 tapi Solna Vikings á útivelli á móti Borås Basket (7. sæti) en þetta var fjórði tapleikur liðsins í röð. Logi var stigalaus í hálfleik en endaði leikinn með 7 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar. Logi klikkaði meðal annars á öllum sex þriggja stiga skotum sínum í leiknum.

Helgi Már Magnússon var með 4 stig, 8 fráköst og 3 stoðsendingar þegar Uppsala tapaði 82-71 á útivelli á móti Södertälje Kings (4. sæti). Helgi lék í tæpar 29 mínútur í leiknum og hitti úr 2 af 4 skotum sínum. Uppsala var 34-33 yfir í hálfleik en gaf eftir í seinni hálfleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×