Körfubolti

Helena sjóðheit í Las Vegas í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða TCU
Helena Sverrisdóttir var sjóðheit fyrir utan þriggja stiga línuna þegar TCU-liðið vann 71-64 sigur á University of Nevada í Las Vegas í nótt en leikurinn fór fram Cox Pavilion höllinni. TCU hefur unnið 8 af 10 leikjum sínum í Mountain West Conference og alls 16 af 24 leikjum vetrarins.

Helena hitti úr öllum fimm þriggja stiga skotum sínum í leiknum og varð aðeins sjöundi leikmaður í sögu skólans til að vera með hundrað prósent skotnýtingu í leik af þeim sem hafa tekið sex skot eða fleiri.

Helena endaði leikinn með 17 stig á 29 mínútum en hún hitti úr 6 af 6 skotum sínum og var auk stiganna með 5 fráköst, 2 stoðsendingar, 1 stolinn bolta og 1 varið skot.

Helena komst líka upp um sæti á tölfræðilistum í þessum leik því hún jafnaði met með því að byrja inn á í sínum 118. leik með TCU og þá komst hún upp í 3. sæti yfir flest fráköst í sögu skólans með því að taka sitt 779. frákast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×