Handbolti

Helena komin í sögubækurnar hjá TCU

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU.
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU. Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir varð í kvöld stoðsendingahæsti leikmaðurinn í sögu TCU-háskólaliðsins í körfubolta. Liðið vann þá sigur á UNLV, 68-60.

Hún hélt upp á áfangann með stórleik. Hún skoraði 24 stig, þar af nítján í síðari hálfleik, þar af átta stig í röð þegar best lét.

En Helena lét ekki þar við setja. Hún nýtti öll sjö skotin sín í síðari hálfleik, stal sjö boltum sem er persónulegt met, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar.

Hún virðist vera upp á sitt allra besta þessa dagana en Helena getur nú einbeitt sér alfarið að körfuboltanum þar sem hún kláraði námið sitt fyrir jól.

Liðið hefur nú unnið báða leiki sína til þessa í Mountain West-deildinni í bandaríska háskólaboltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×